Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákana
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   þri 26. júlí 2016 21:44
Alexander Freyr Tamimi
Ásdís Karen: Getum náð stigi á móti öllum liðum
Ásdís Karen Halldórsdóttir.
Ásdís Karen Halldórsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Ásdís Karen Halldórsdóttir átti fínan leik í liði KR þrátt fyrir 2-0 tap gegn Breiðabliki í Pepsi-deild kvenna í kvöld.

Hún var svekkt með tapið en hins vegar ánægð með frammistöðu og karakter KR liðsins, sem hélt hreinu í fyrri hálfleik.

Lestu um leikinn: KR 0 -  2 Breiðablik

„Mér fannst við bara góðar. Við lágum til baka mikið og héldum hreinu í fyrri hálfleik. Þær hefðu getað skorað einhver mörk en með smá heppni héldum við hreinu. Við vorum alveg góðar í fyrri hálfleik en fengum svo mark á okkur strax í byrjun seinni. Það dró okkur smá niður en við héldum samt áfram," sagði Ásdís Karen við Fótbolta.net eftir leikinn.

„Við vorum búnar að halda vel og liggja til baka, síðan fáum við þetta mark á okkur. En við héldum áfram og hættum aldrei og áttum færi þarna í lokin."

Ásdís hefur ekki miklar áhyggjur af því að KR falli úr deildinni þrátt fyrir að liðið sé fjórum stigum frá öruggu sæti.

„Það eru bara fjögur stig í FH og við eigum eftir að spila á móti ÍA og FH og fleiri liðum sem við getum náð þremur stigum á móti. Við getum náð stigi á móti öllum liðum í deildinni, við höfum sýnt það."
Athugasemdir
banner