Fotbolti.net
26.07.16 - 15:00
Magnús Már Einarsson

Hákon Ívar og Gunnar Gunnars í Hauka (Staðfest)

Hákon Ívar er farinn í Hauka.

Hákon Ívar er farinn í Hauka.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hanna Símonardóttir

Haukar hafa fengið kantmanninn Hákon Ívar Ólafsson í sínar raðir á láni frá Grindavík.

Hákon Ívar hefur spilað átta leiki í Inkasso-deildinni í sumar og skorað eitt mark.
Hann mun nú reyna að hjálpa Haukum í fallbaráttunni í Inkasso-deildinni en liðið er einungis tveimur stigum frá fallsvæðinu.

Haukar hafa einnig fengið Gunnar Gunnarsson aftur í sínar raðir frá Val.

Gunnar spilaði sex leiki á láni með Haukum fyrr á tímabilinu áður en hann snéri aftur í Val fyrir tveimur vikum. Hann er nú mættur aftur á Ásvelli og verður með Haukum út tímabilið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.