Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
Pétur: Allt öðruvísi en gegn Víkingum
Fyrirliðinn ánægður með fyrsta sigurinn - „Þvílíkur bónus að koma marki inn í lokin"
   þri 26. júlí 2016 21:42
Arnar Daði Arnarsson
Orri: Hugsa mér að fara upp Helgafellið
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var gríðarlega mikilvægur sigur. Virkilega," sagði Orri Þórðarson þjálfari FH eftir 2-1 sigur gegn ÍA á heimavelli í Pepsi-deild kvenna í kvöld.

Fyrir leik munaði aðeins þremur stigum á liðunum en eftir sigurinn fer FH upp í 6. sæti deildarinnar og eru nú fjórum stigum frá falli.

Lestu um leikinn: FH 2 -  1 ÍA

„Ég var gríðarlega ánægður með baráttuna. Leikurinn bar þess merki að það er mikið undir og mikið í húfi. Á köflum var þetta fín spilamennska en fyrst og fremst er ég ánægður með þrjú stig."

ÍA-liðið kom sterkari til leiks inn í seinni hálfleikinn og náðu að jafna metin eftir að FH hafi leitt í hálfleik.

„Þær eru með marga kröfugu leikmenn og sterka í loftinu. Það er alltaf ógn af þeim. Ég get verið sammála þér að þetta lá svolítið í loftinu en mér fannst við svara þessu mjög vel. Mér fannst við sterkari það sem eftir lifði leiks. Við náðum að skora annað markið fljótlega eftir jöfnunarmark þeirra og gáfu engin færi á okkur eftir það."

Alex Nicole Alugas gekk í raðir FH í dag frá Sindra og hún skoraði sigurmarkið.

„Þetta var draumabyrjun fyrir hana. Rosalega skemmtilegt. Hún kom virkilega sterk inn fyrir okkur. Hún hefur mikinn hraða og styrkir okkur klárlega," sagði Orri sem ætlar sér í fjallgöngu í kvöld.

„Ég er að hugsa mér að fara á Helgarfellið. Það er alltaf magnað að fara á það skemmtilega fjall, okkar Hafnfirðinga, sagði Orri Þórðarson þjálfari FH að lokum.

Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner