Faðir portúgalska landsliðsmannsins Joao Mario segir að Liverpool hafi reynt að krækja í hann á dögunum.
Joao Mario var í liði Portúgals á EM en hann er á mála hjá Sporting Lisabon í heimalandinu.
Joao Mario var í liði Portúgals á EM en hann er á mála hjá Sporting Lisabon í heimalandinu.
„Mér er sagt að félagið hafi hafnað tveimur tilboðum," sagði Joao Mario Eduardo, faðir leikmannsins.
„Einu frá Inter upp á 35 milljónir evra plús bónusar og öðru frá Liverpool sem var 40 milljónir evra án bónusa."
Joao Mario er 23 ára gamall en hann er ekki ennþá byrjaður að æfa með Sporting Lisabon eftir EM.
Athugasemdir