Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 26. ágúst 2014 14:34
Magnús Már Einarsson
Benatia á leið til Bayern
Mehdi Benatia.
Mehdi Benatia.
Mynd: Getty Images
Mehdi Benatia, varnarmaður Roma, er á leið til FC Bayern ef marka má fréttir frá Ítalíu.

Sky Italia greinir frá því að Benatia muni fara í læknisskoðun í Þýskalandi á morgun og í kjölfarið skrifa undir fimm ára samning við Bayern.

Kaupverðið hljóðar upp á 26 milljónir evra eða 20,7 milljónir punda.

Benatia er frá Marokkó en hann var sterklega orðaður við Manchester United fyrr í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner