Jordan Henderson, miðjumaður Liverpool, segir að leikmenn liðsins bíði spenntir eftir að spila með Mario Balotelli.
Balotelli var í stúkunni þegar Liverpool tapaði gegn Manchester City í gær en hann gæti leikið sinn fyrsta leik gegn Tottenham á sunnudag.
Balotelli var í stúkunni þegar Liverpool tapaði gegn Manchester City í gær en hann gæti leikið sinn fyrsta leik gegn Tottenham á sunnudag.
,,Ég held að allir bíði spenntir eftir að vinna með honum," sagði Henderson.
,,Hann er mjög hæfileikaríkur leikmaður. Vonandi getur hann styrkt okkur mikið og komið við sögu í næsta leik."
,,Hann mætti í búningsklefann til að óska okkur góðs gengis. Það var gaman að sjá hann. Vonandi getur hann æft vel í vikunni og verið klár á sunnudag."
Athugasemdir