Þórður Jensson, þjálfari FH var svekktur við tap liðsins gegn Fylki í dag og fannst liðið eiga meira skilið úr leiknum.
,,Já, ég er mjög svekktur, það sást ekki á þessum leik hvort liðið er ofar í töflunni. Við áttum klárlega að fá þrjú stig."
,,Við sýndum allan leikinn að við erum betri en þær, ég er mjög svekktur."
Þórður segir að mörkin hafi verið klaufaleg.
,,Þetta voru klaufa mörk, en ekki hægt að skrifa þau á neinn. Þetta var reynsluleysi nokkura leikmanna."
,,Við unnum okkur inn í leikinn og stjórnuðum honum þrátt fyrir að vera tveimur mörkum undir."
Athugasemdir