Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mið 26. ágúst 2015 11:30
Magnús Már Einarsson
Enner Valencia segir að West Ham hafi gleymt meiðslunum
Mynd: Getty Images
Enner Valencia, framherji West Ham, er brjálaður yfir að hafa ekki fengið betri meðhöndlun hjá félaginu vegna meiðsla sem hann varð fyrir í leik í Evrópudeildinni í síðasta mánuði.

Valencia meiddist á hné og í júlí var sagt að hann yrði frá keppni næstu tvo mánuðina.

Valencia vill hins vegar meina að West Ham sé búið að gleyma meiðslunum og hann vill fá að ræða við annan lækni.

„Ég hef reynt að fá að ræða við annan lækni en læknir West Ham vill ekki leyfa það," sagði Valencia.

„Við erum að tala um heilsu mína hér. Ég hef verið meiddur í mánuð og ég veit ekki ennþá hvað meiðslin heita."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner