Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   mið 26. ágúst 2015 14:42
Magnús Már Einarsson
Viðtal
Eyjólfur Sverris: Geta orðið heimsklassa leikmenn
Eyjólfur Sverrisson.
Eyjólfur Sverrisson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við erum að reyna að sigta út leikmenn sem gætu verið framtíðar landsliðsmenn og það er alltaf erfitt," sagði Eyjólfur Sverrisson þjálfari U21 árs landsliðs Íslands við Fótbolta.net eftir að hann tilkynnti hópinn sem mætir Frakklandi og Norður-Írlandi í undankeppni EM í byrjun næsta mánaðar.

Björgvin Stefánsson, markahæsti leikmaður 1. deildar, er í hópnum sem og Viktor Jónsson og Ævar Ingi Jóhannesson sem leika einnig í 1. deild. Eyjólfur hefur þjálfað U21 árs landsliðið frá því árið 2009 en í þessari undankeppni hefur hann í fyrsta skipti valið leikmenn úr 1. deild í hópinn. Af hverju er sú breyting?

„Það eru leikmenn þarna sem eru virkilega góðir. Það eru kannski færri leikmenn í efstu deild með fastan leiktíma. Mér er alveg sama hvar þeir spila. Við horfum á getuna og það er það sem skiptir máli."

Franska U21 árs landsliðið er öflugt og Eyjólfur reiknar með hörkuleik í Kópavogi laugardaginn 5. september næstkomandi.

„Leikurinn á móti Frökkum verður gríðarlega erfiður. Við erum að spila á móti mönnum sem spila með Athletic Bilbao, West Ham og liðum í frönsku deildinni. Við vitum að það verður á brattann að sækja. Við unnum samt Þjóðverja 4-1 í Kaplakrika á sínum tíma og margir úr því þýska liði eru heimsmeistarar í dag."

„Það er alltaf möguleiki og menn verða að hafa trú á því sem er framundan. Við þurfum að sýna þessum strákum að þeir geta orðið heimsklassa leikmenn. Í A-landsliðinu í dag eru margir strákar sem við unnum með í gamla daga og það er gaman að sjá að íslensk knattspyrna er í sókn."


Eyjólfur segist ekki búast við að árangur í 2. sæti í riðli Íslands dugi í undankeppninni að þessu sinni.

„Við verðum væntanlega bara að vinna riðilinn. Leikurinn á móti Frökkum skiptir gríðarlegu máli fyrir okkur þar," sagði Eyjólfur.

Leikurinn gegn Frökkum er á Kópavogsvelli laugardaginn 5. september en leikurinn gegn Norður-Írum verður á Fylkisvelli þremur dögum síðar.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner