Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 26. ágúst 2015 09:03
Alexander Freyr Tamimi
Mascherano vill fara í þjálfun
Mynd: Getty Images
Javier Mascherano, leikmaður Barcelona, segist vilja fara út í þjálfun þegar hann leggur skóna á hilluna.

Þessi fyrrum miðjumaður Liverpool er 31 árs gamall og vill miðla af reynslu sinni eftir að ferlinum lýkur.

„Ég vil fara út í þjálfun. Sem leikmaður er þetta auðveldara, en þetta flækist þegar þú ert kominn yfir í þjálfun," sagði Argentínumaðurinn við Radio Metro.

„Ég vil miðla öllu sem þjálfarar mínir hafa kennt mér. Í fótbolta fara hlutirnir í hring."
Athugasemdir
banner
banner
banner