Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 26. ágúst 2015 12:30
Magnús Már Einarsson
Ráðstefna í tengslum við úrslitaleik Borgunarbikars kvenna
Aðalfyrirlesari er Jonas Eidevall
Jonas Eidvall.
Jonas Eidvall.
Mynd: KÞÍ
Knattspyrnuþjálfarafélag Íslands (KÞÍ) í samstarfi við KSÍ kynnir glæsilega bikarúrslitaráðstefnu sem haldin verður í Fífunni Kópavogi i í tengslum við úrslitaleik Borgunarbikars kvenna. Dagskrá ráðstefnunnar er öll á föstudeginum 28. ágúst, en úrslitaleikur Borgunarbikarsins er síðan daginn eftir, laugardaginn 29. ágúst.

Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar eru Jonas Eidevall, fyrrum þjálfari Rosengård í Svíþjóð. Jonas er sænskur UEFA PRO þjálfari sem gerði Rosengård að sænskum meisturum árið 2013 og var valinn þjálfari ársins í Svíþjóð sama ár.

Jonas mun fjalla um hvernig á búa til topplið í Evrópu, en hann hann hefur reynslu af því eftir veru sína hjá Rosengård, bæði í Evrópukeppni og deildarkeppni.

Nánar um Jonas Eidevall

Athygli þjálfara er vakin á því að ráðstefnan veitir 4 endurmenntunarstig á UEFA A og UEFA B þjálfaragráðum.

Dagskrá - föstudagur 28. ágúst
19.00 Ávarp formanns KÞÍ og kvöldmatur.
19.30 Hvernig á að byggja upp topplið í Evrópu
Jonas Eidevall – sýnikennsla.
20.45 Hvernig á að byggja upp topplið í Evrópu
Jonas Eidevall – fyrirlestur.
21.45 Spáð í spilin fyrir bikarúrslitaleik kvenna
Freyr Alexandersson landsliðsþjálfari kvenna
22.00 Veitingar og spjall.

Verð á ráðstefnuna er 3.000 krónur fyrir félagsmenn KÞÍ.
Verð fyrir þá sem eru ekki félagsmenn er 6.000 krónur.
Innifalið í verðinu er kvöldmatur, miði á bikarúrslitaleikinn, fræðsla og endurmenntunarstig.


Ráðstefnan er opin öllum. Hægt er að skrá sig með því að senda tölvupóst á [email protected] með upplýsingum um nafn og kennitölu.
Athugasemdir
banner
banner
banner