Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 26. ágúst 2015 10:16
Magnús Már Einarsson
Tor Andre farinn frá Blikum
Mynd: tvh.no
Tor Andre Skimmeland hefur ákveðið að yfirgefa herbúðir Breiðabliks og halda aftur til síns heima í Noregi.

Tor Andre skipti yfir til Blika í júlí en náði ekki að vinna sér sæti í hóp hjá meistaraflokki Breiðabliks.

Hann spilaði þrjá leiki með 2. flokki og stóð sig vel að því er fram kemur á blikar.is.

„Tor Andre er drengur góður og þökkum við honum kærlega fyrir tímann hér sem var styttri en vonir stóðu til í upphafi," segir á Blikar.is.

„Blikar óska honum alls velfarnaðar í framtíðinni og vonum við að hann nái sér á strik í Noregi."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner