Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 26. ágúst 2015 12:00
Magnús Már Einarsson
Victor Valdes á leið til Besiktas
Mynd: Getty Images
Tyrkneska félagið Besiktas hefur náð samkomulagi um að kaupa markvörðinn Victor Valdes frá Manchester United.

Hinn 33 ára gamli Valdes samdi við Manchester United síðastliðinn vetur eftir að hafa leikið með Barcelona allan sinn feril.

Valdes lenti hins vegar upp á kant við Louis van Gaal stjóra Manchester United eftir að hann neitaði að spila fyrir varalið Manchester United á síðasta tímabili.

„Hann fylgir ekki hugmyndafræði okkar. Það er ekki pláss fyrir leikmenn sem gera það ekki. Þá er bara ein leið fyrir þá og það er út. Hann verður seldur," sagði Van Gaal í júlí síðastliðnum.
Athugasemdir
banner
banner
banner