fös 26. ágúst 2016 07:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Arsenal búið að semja um kaupverð á Lucas Perez
Lucas Perez er á leiðinni til Arsenal.
Lucas Perez er á leiðinni til Arsenal.
Mynd: Getty Images
Arsenal hefur samþykkt að borga 17 milljónir punda fyrir Lucas Perez, framherja Deportivo en Sky Sports greinir frá þessu.

Perez mun fara í læknisskoðun og ræða um persónuleg kjör áður en kaupin verða staðfest en hann ferðaðist ekki með liðinu til Real Betis en Deportivo mætir Betis í kvöld.

Arsene Wenger hefur talað um að hann vilji styrkja framlínuna sína og hefur hann boðið í leikmenn eins og Alexandre Lacazette, framherja Lyon.

Hann er þekktur sem Lucas en hann spilaði með unglingaliðum Atletico Madrid.
Athugasemdir
banner
banner
banner