Burton Albion 1 - 0 Derby County
1-0 Jackson Irvine ('12 )
1-0 Jackson Irvine ('12 )
Það var grannslagur í ensku Championship-deildinni í kvöld þegar Burton Albion fékk Derby County í heimsókn.
Burton Albion eru nýliðar í Championship-deildinni en það voru þeir sem komust yfir í leiknum. Ástralinn Jackson Irvine skoraði með skalla á 12. mínútu og staðan í hálfleik var 1-0 fyrir heimamenn.
Leikmenn Derby reyndu hvað þeir gátu að jafna leikinn en það tókst ekki. Burton Albion sýndi mjög agaðan varnarleik í seinni hálfleik og það skilaði þeim sigri.
Lokatölur 1-0 fyrir Burton Albion og þeir fara upp í 6. sæti deildarinnar með sjö stig. Derby er eftir þetta tap með fimm stig 17. sæti og þeir verða að rífa sig upp.
Athugasemdir