Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 26. ágúst 2016 12:30
Magnús Már Einarsson
Chelsea skoðar Marcos Alonso
Mynd: Getty Images
Antonio Conte, stjóri Chelsea, er að íhuga að leggja fram tilboð í Marcos Alonso.

Alonso er vinstri bakvörður en hann er á mála hjá Fiorentina á Ítalíu.

Conte vill fá Alonso til að berjast við Cesar Azpilicueta og Branislav Ivanovic um bakvarðarstöðurnar.

Hinn 25 ára gamli Alonso ólst upp hjá Real Madrid en hann þekkir til í enska boltanum eftir að hafa áður leikið með Bolton og Sunderland.
Athugasemdir
banner
banner
banner