fös 26. ágúst 2016 11:30
Magnús Már Einarsson
Crystal Palace ætlar ekki að selja Zaha til Tottenham
Zaha á sprettinum.
Zaha á sprettinum.
Mynd: Getty Images
Steve Parish, formaður Crystal Palace, ætlar ekki að selja kantmanninn Wilfried Zaha til Tottenham.

Tottenham lagði fram 15 milljóna punda tilboð í Zaha í vikunni en Palace vill ekki selja.

,Formaðurinn er með skýra stefnu og ég stend með henni. Þetta er rétt fyrir okkur," sagði Alan Pardew, stjóri Crystal Palace.

Manchester United keypti Zaha í janúar 2013 á 10 milljónir punda. Hinn 23 ára gamli Zaha náði aldrei að festa sig í sessi á Old Trafford og hann var á endanum lánaður aftur til Crystal Palace. Í febrúar í fyrra var Zaha keyptur aftur til Palace.

Á síðasta tímabili skoraði Zaha fimm mörk í 43 leikjum og lagði upp sjö mörk að auki.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner