Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 26. ágúst 2016 18:02
Elvar Geir Magnússon
Danmörk: Hannes fengið á sig þrjú mörk í sex leikjum
Hannes í leik með Randers.
Hannes í leik með Randers.
Mynd: Getty Images
Ólafur Kristjánsson og lærisveinar hans í Randers fögnuðu 1-0 sigri gegn Silkeborg í dönsku úrvalsdeildinni í dag.

Mikkel Kallesoee skoraði eina mark leiksins en landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórsson varði mark Randers og hélt hreinu. Hannes átti mjög góðan leik samkvæmt dönskum fjölmiðlum.

Hannes hefur staðið sig vel hjá Randers og aðeins fengið á sig þrjú mörk í þeim sex leikjum sem hann hefur spilað.

Randers er í þriðja sæti með 14 stig eins og FCK og Bröndby sem eru í sætunum fyrir ofan en eiga bæði leik til góða.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner