Chelsea hefur gengið frá kaupum á Eduardo, portúgölskum markmanni Dinamo Zagreb.
Eduardo var partur af leikmannahóp Portúgala sem unnu EM í sumar en hann skrifar undir eins árs samning við enska félagið.
Honum er ætlað að veita Thibaut Courtois og Asmir Begovic samkeppni en sá síðarnefndi gæti yfirgefið Chelsea í félagsskiptaglugganum.
Eduardo á 35 landsleiki með Portúgal og hefur hann leikið 98 leiki með Dinamo.
Athugasemdir