Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 26. ágúst 2016 21:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mynd: Samanburðurinn á Jamie Vardy og Lucas Perez
Lucas Perez er á leið til Arsenal
Lucas Perez er á leið til Arsenal
Mynd: Getty Images
Arsenal er að kaupa sóknarmanninn Lucas Perez frá Deportivo La Coruna á Spáni fyrir 17,1 milljón punda.

Perez er kannski ekki þekktasta nafnið í bransanum, en svo virðist sem það sé mikið spunnið í hann.

Það er athyglisvert að skoða samanburðinn á Perez og Jamie Vardy, sóknarmanni Leicester City, en svo má segja að þeir hafi báðir brotist út á síðasta leiktímabili. Eini munurinn er þó sá að Vardy varð meistari með sínu liði á meðan Perez endaði í 15. sæti með sínu liði.

Arsenal var lengi vel á höttunum á eftir Jamie Vardy í sumar, en hann ákvað að halda tryggð við Leicester. Arsenal virðist þó vera að gera ágætis kaup með Perez, en varnarmaðurinn Shkodran Mustafi er einnig á leið til félagsins.

Hér að neðan má sjá samanburð á Lucas Perez og Jamie Vardy í boði Sky Sports, en munurinn er alls ekki mikill.
Athugasemdir
banner