Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 26. september 2016 22:10
Arnar Geir Halldórsson
Mazzarri: Enski boltinn er erfiður
Mynd: Getty Images
Walter Mazzarri, stjóri Watford, var ósáttur með andleysið sem einkenndi lið Watford gegn Burnley í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Watford vann góðan sigur á Man Utd í síðustu umferð en áttu aldrei möguleika gegn Burnley í kvöld.

„Þetta var ekki nógu gott. Ég var að vona að leikmenn kæmu jafn hungraðir og af sama krafti og þeir gerðu gegn Man Utd en þeir gerðu það alls ekki,"

„Það gengur ekki upp í enskum fótbolta. Hann er erfiður. Burnley voru mjög grimmir. Þetta er lið sem vann Liverpool,"
sagði Mazzarri.

Athugasemdir
banner
banner