Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mán 26. september 2016 20:09
Arnar Geir Halldórsson
Sjáðu mörkin: Þriðja mark Alberts magnað
Mynd: Getty Images
Íslenski unglingalandsliðsmaðurinn Albert Guðmundsson skoraði þrennu í 3-0 sigri Jong PSV á Fortuna Sittard í hollensku B-deildinni í kvöld.

Albert skoraði fyrsta markið á 20.mínútu og tvöfaldaði forystuna eftir rúmlega klukkutíma leik.

Hann fullkomnaði svo þrennu sína á lokamínútu leiksins.

Myndbönd af öllum mörkunum þrem er hér fyrir neðan en það þriðja var sérlega glæsilegt.

Albert er þar með kominn með fimm mörk eftir átta leiki en PSV Jong, sem er unglinga- og varalið hollenska stórliðsins PSV, trónir á toppi deildarinnar.


1 by taftadarka2016

3 by taftadarka2016

Albert Gudmundsson SUPER GOAL Jong PSV 3... by football365Life1
Athugasemdir
banner
banner
banner