Jamie Vardy var ekkert í sérstaklega góðu skapi er Leicester City steinlá gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni um helgina.
Vardy var dæmdur brotlegur og var ekki sáttur þegar Mike Dean, dómari leiksins, hlustaði ekki á mótmæli frá honum.
Vardy var dæmdur brotlegur og var ekki sáttur þegar Mike Dean, dómari leiksins, hlustaði ekki á mótmæli frá honum.
„Þú ert feit og sköllótt kunta," sagði Vardy við Dean eftir að hann var dæmdur brotlegur og náðust orðin á myndband.
Samkvæmt nýjum reglum sem tóku gildi við upphaf tímabilsins átti Vardy að fá beint rautt spjald fyrir slíkan munnsöfnuð, en fékk ekki.
Óljóst er hvort eitthvað verði aðhafst í málinu, en það er klárt mál að Vardy, sem er þekktur fyrir að kjaftbrúk í leikjum, þarf að passa skapið á sér.
Athugasemdir