Zlatan Ibrahimovic, framherji Manchester Unietd, sagði í gríni við Mino Raiola að hann myndi fótbrjóta umboðsmanninn ef Paul Pogba myndi ekki semja við United.
Raiola er umboðsmaður bæði Zlatan og Pogba. Svíinn samdi við Manchester United í sumar og Pogba var síðar keyptur til félagsins á metfé.
Zlatan vildi ólmur fá Pogba til Manchester United og lagði hart að Raiola að láta félagaskiptin ganga í gegn.

„Zlatan sagði við mig 'Ekki láta Pogba fara annað, annars fótbrýt ég þig," sagði Raiola í viðtali í Hollandi í dag.
Athugasemdir