Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 26. september 2017 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Bartra: Mætum Real maður á mann - Viljum stjórna leiknum
Dortmund er með 16 stig og markatöluna 19-1 eftir 6 umferðir í Þýskalandi.
Dortmund er með 16 stig og markatöluna 19-1 eftir 6 umferðir í Þýskalandi.
Mynd: Getty Images
Marc Bartra, varnarmaður Borussia Dortmund, segir liðsfélaga sína vera tilbúna að fá ríkjandi meistara Real Madrid í heimsókn í kvöld.

Dortmund hefur gengið vel gegn Real undanfarin ár en Spánverjunum hefur þó tekist að vinna Meistaradeildina þrisvar á fjórum árum.

„Við höfum reynslu af því að spila við Real, við ætlum að mæta þeim maður á mann," sagði Bartra við AS.

„Við vitum hvað þeir geta gert en höfum einnig mikla trú á sjálfum okkur.

„Við ætlum að vera meira með boltann, við ætlum að stjórna leiknum."

Athugasemdir
banner
banner
banner