Coleen Rooney, eiginkona Wayne Rooney, hefur sagt eiginmanni sínum að hætta að hanga með Wes Brown á kvöldin en hún telur að Brown hafi slæm áhrif á sinn mann.
Rooney berst fyrir því að halda hjónabandi sínu á lífi eftir að hafa verið handtekinn ölvaður undir stýri á bíl sem kona að nafni Laura Simpson á.
Rooney berst fyrir því að halda hjónabandi sínu á lífi eftir að hafa verið handtekinn ölvaður undir stýri á bíl sem kona að nafni Laura Simpson á.
Rooney var með Brown þetta kvöld en þeir tveir voru samherjar hjá Manchester United á sínum tíma.
Þeir Rooney og Brown hafa verið duglegir að heimsækja spilavíti og vill Coleen að Rooney hætti veðmálum ef þau eigi að vera áfram saman.
Rooney og félagar í Everton mætir Apollon Limassol í Evrópudeildinni á fimmtudaginn.
Athugasemdir