Nathaniel Chalobah var keyptur til Watford í sumar og byrjaði tímabilið vel þar til hann meiddist á æfingu fyrir skömmu.
Hann var kallaður upp í enska landsliðshópinn í ágúst og búist var við að hann fengi kallið aftur fyrir leikina gegn Slóveníu og Litháen í næstu viku.
Hann var kallaður upp í enska landsliðshópinn í ágúst og búist var við að hann fengi kallið aftur fyrir leikina gegn Slóveníu og Litháen í næstu viku.
Chalobah er 22 ára gamall og getur bæði spilað í vörn og á miðju, en hann á tæpa 100 keppnisleiki að baki fyrir yngri landslið Englands.
Þetta eru slæm tíðindi fyrir Watford sem hefur byrjað tímabilið vel og er með 11 stig eftir 6 umferðir.
Athugasemdir