Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
   þri 26. september 2017 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Sampson var að hitta leikmann sem hann þjálfaði
Mynd: Getty Images
Daily Mail segir að nýjar upplýsingar úr máli Mark Sampson hafi litið dagsins ljós.

Sampson var á dögunum rekinn sem þjálfari enska kvennalandsliðsins eftir að Eniola Aluko og Drew Spencer ásökuðu hann um að hafa sýnt kynþáttafordóma í sinn garð.

Nýju upplýsingarnar frá Daily Mail herma að enska knattspyrnusambandið hafi rannsakað fortíð Sampson og komist að því að hann átti í kynferðislegu sambandi við leikmann sem hann þjálfaði hjá Bristol Academy.

Samkvæmt heimildarmönnum breska blaðsins hittist parið í hálft ár, leikmaðurinn hafði náð 18 ára aldri og hafði ekkert út á málið að setja.
Athugasemdir
banner
banner