Heimild: mbl.is
Varnarmaðurinn öflugi Sölvi Geir Ottesen stefnir á að spila í Pepsi-deild karla næsta sumar en þetta staðfesti hann í samtali við mbl.is í dag.
Sölvi er á mála hjá Guangzhou R&F í Kína en samningur hans þar rennur út um áramótin.
Sölvi kom til Guangzhou R&F í júlí eftir hafa spilað með Buriram United í Taílandi fyrri hluta ársins.
Sölvi er á mála hjá Guangzhou R&F í Kína en samningur hans þar rennur út um áramótin.
Sölvi kom til Guangzhou R&F í júlí eftir hafa spilað með Buriram United í Taílandi fyrri hluta ársins.
Í sumar æfði Sölvi um tíma með FH áður en hann samdi við Guangzhou R&F.
Hinn 33 ára gamli Sölvi hefur verið erlendis í atvinnumennsku frá því að hann fór frá Víkingi R. árið 2004.
Ljóst er að mörg félög í Pepsi-deildinni eiga eftir að sýna Sölva áhuga en hann á 28 landsleiki að baki.
Athugasemdir