Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 26. september 2017 19:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Það sem Cavani á að hafa sagt við Neymar - „Hver er þetta?"
Mynd: Getty Images
Það er ekki leyndarmál að Neymar og Edinson Cavani, leikmenn Paris Saint-Germain, eru ekki bestu vinir.

Í deildarleik á dögunum rifust þeir um hvor ætti að taka vítaspyrnu. Cavani tók á endanum spyrnuna en hún var varin.

Samkvæmt El Pais voru fyrstu kynni þeirra ekki góð, alls ekki.

Neymar varð dýrasti leikmaður fótboltasögunnar í sumar, en PSG borgaði Barcelona tæplega 200 milljónir punda fyrir þjónustu Brasilíumannsins.

„Og hver er þetta? Helduðu að þú sért Messi?" á Cavani að hafa sagt við Neymar fyrst þegar þeir hittust eftir að Neymar var opinberaður sem leikmaður PSG.

Þetta á eins og gefur að skija ekki að hafa verið vel í Neymar. Hann yfirgaf Barcelona til að koma sér úr skugga Messi.
Athugasemdir
banner
banner
banner