Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mið 26. október 2016 12:23
Magnús Már Einarsson
Dino Gavric gerir tveggja ára samning við Fram
Dino Gavric.
Dino Gavric.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fram hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við króatíska varnarmanninn Dino Gavric. Þetta kemur fram á heimasíðu Fram.

„Auk þess að vera frábær leikmaður þá er Dino reynslumikill og sterkur karakter sem hjálpar liðinu að ná lengra og það er ekki síður þess vegna sem það er félaginu dýrmætt að tryggja sér krafta hans næstu tvö árin,“ sagði Ásmundur Arnarsson þjálfari Fram um Gavric.

Gavric er 27 ára og fæddur í Króatíu. Hann lék 18 leiki í Inkasso-deildinni í sumar og skoraði 3 mörk auk þess að leika 3 leiki í Borgunarbikarnum.

„Gavric er miðvörður og var einn besti leikmaður liðsins í sumar. Hann er mjög ánægður á Íslandi og líður vel hér. Það var að hans frumkvæði að samið var til tveggja ára en ekki eins árs líkt og oft tíðkast með útlenda leikmenn sem hingað koma," segir á heimasíðu Fram.

„Þjálfari Fram Ásmundur Arnarsson og knattspyrnudeild lýsa yfir mikilli ánægju með samninginn við þennan mjög svo geðþekka króata."

Króatísku leikmennirnir Ivan Bubalo og Ivan Parlov voru líka á mála hjá Fram í sumar en þeir verða ekki með liðinu á næsta tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner