Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mið 26. október 2016 12:53
Elvar Geir Magnússon
Luke Shaw í æfingaakstri með mömmu
Shaw með móður sinni.
Shaw með móður sinni.
Mynd: The Sun
Enski landsliðsmaðurinn Luke Shaw hjá Manchester United hæfur í nægu að snúast þessa dagana.

Hann er að búa sig undir deildabikarleikinn gegn Manchester City sem fram fer í kvöld og einnig að vinna í því að fá bílprófið.

Þessi 21 árs vinstri bakvörður yfirgaf æfingasvæði United á síðustu æfingu fyrir leikinn á Range Rover bifreið. Shaw er í æfingaakstri um þessar mundir og sat móðir hans í farþegasætinu.

Reiknað er með því að Shaw verði í byrjunarliðinu í kvöld en flautað verður til leiks klukkan 19:00.

Fleiri myndir af Shaw í æfingaakstri ásamt myndum af bílaflota annarra leikmanna Manchester United má finna á heimasíðu The Sun.
Athugasemdir
banner
banner
banner