Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 26. október 2016 21:44
Jóhann Ingi Hafþórsson
Mourinho: Stuðningsmennirnir eiga hjartað mitt
Jose Mourinho í leiknum í kvöld.
Jose Mourinho í leiknum í kvöld.
Mynd: Getty Images
„Leikmennirnir gáfu allt sem þeir gátu og við áttum skilið að vinna, við erum ánægðir," sagði Jose Mourinho eftir 1-0 sigur á Manchester City í deildabikarnum í kvöld.

„Það var allt á móti okkur síðustu helgi en við erum atvinnumenn. Stuðningsmennirnir fundu fyrir því en það var gott að losna við þá tilfinningu í kvöld, að slá út nágranna okkar."

Mourinho var spurður hvort hann hafi notast við sterkara byrjunarlið í kvöld vegna úrslitanna gegn Chelsea.

„Já, okkur var að ganga vel en þetta var stórt tap. Saga félagsins á ekki skilið að hafa svona tap og þegar ég er hjá félagi eiga stuðningsmenn þess hjartað mitt og ég fann til með þeim," sagði Mourinho.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner