Óhætt er að segja að enska B-deildarliðið Newcastle United sé á miklu flugi um þessar mundir. Eftir 6-0 sigurinn gegn Preston í deildarbikarnum í gær hefur liðið unnið sex leiki í röð og ósigrað í átta leikjum.
Seinasta tap Newcastle kom gegn Wolves í B-deildinni 17. september en liðið hefndi fyrir það með sigri gegn Úlfunum í deildabikarnum þremur dögum síðar.
Eftir jafntefli gegn Aston Villa hefur liðið nú unnið sex leiki í röð og er í efsta sæti deildarinnar með 31 stig.
Næsti deildarleikur liðsins er einmitt gegn Preston um helgina, liðinu sem Newcastle vann 6-0 í deildabikarnum í gær.
Athugasemdir