Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 26. nóvember 2014 12:40
Magnús Már Einarsson
Fimm mánuðir í að Vermaelen spili sinn fyrsta leik?
Vermaelen hefur lítið verið í þessari treyju.
Vermaelen hefur lítið verið í þessari treyju.
Mynd: Getty Images
Thomas Vermaelen hefur ekki ennþá spilað mótsleik með Barcelona síðan hann kom til félagsins frá Arsenal í sumar.

Belgíski varnarmaðurinn hefur verið að glíma við meiðsli aftan í læri en hann byrjaði þó aðeins að æfa í síðustu viku.

Fjölmiðlar á Spáni greina hins vegar frá því í dag að Vermaelen hafi ákveðið að fara í aðgerð til að vinna endanlega bug á meiðslunum.

Vermaelen mun fara í aðgerð í Finnlandi og í kjölfarið verður hann frá keppni í fimm mánuði.

Ef satt reynist er ljóst að Vermaelen mun lítið sem ekkert koma við sögu á þessu tímabili.
Athugasemdir
banner
banner