Varnarmaðurinn, Hlynur Atli Magnússon, er á leið til æfinga hjá BK Forward í sænsku annarri deildinni en þetta staðfesti hann við Fótbolta.net í dag.
Hlynur Atli, sem er 24 ára gamall, er uppalinn hjá Fram en hann lék yfir 60 leiki í bæði deild- og bikar áður en hann ákvað að söðla um.
Hann samdi við Þór snemma á síðasta ári og lék tvö tímabil með þeim en hann lék 38 leiki fyrir félagið í bæði deild- og bikar.
Hlynur meiddist á öxl í ágúst og missti í kjölfarið af síðustu leikjum tímabilsins en hann hefur jafnað sig af meiðslunum og er nú á leið til BK Forward í sænsku annarri deildinni þar sem hann dvelur í viku áður en hann heldur heim til Íslands.
,,Ég hef verið í fríi og um leið endurhæfingu hjá bróður mínum á Ítalíu og er búinn að jafna mig af meiðslunum," sagði Hlynur.
,,Ég fer til Svíþjóðar í næstu viku með kærustunni minni og æfi um leið með BK Forward í sænsku annarri deildinni áður en við förum heim."
,,Maður hefur heyrt frá nokkrum liðum heima en ég skoða þetta allt saman þegar ég kem heim," sagði hann að lokum.
Athugasemdir