Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 26. nóvember 2014 18:55
Ívan Guðjón Baldursson
Meistaradeildin: Zenit sló Benfica úr leik
Hulk lagði eina mark leiksins upp.
Hulk lagði eina mark leiksins upp.
Mynd: Getty Images
Zenit 1 - 0 Benfica
1-0 Danny ('79)
Rautt spjald: Luisao, Benfica ('92)

Zenit frá Sankti Pétursborg sló Benfica úr leik í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.

Portúgalinn Danny skoraði eina mark leiksins á 79. mínútu eftir stoðsendingu frá Hulk.

Luisao fékk að líta rauða spjaldið í uppbótartíma en heimamenn voru betri í leiknum og verðskulduðu sigur gegn Benfica.

Benfica er því búið að missa af sæti í 16-liða úrslitum enda aðeins með fjögur stig eftir fimm leiki.

Zenit fer í sjö stig og mætir Monaco í lokaumferðinni í hreinum úrslitaleik um sæti í útsláttarkeppninni.
Athugasemdir
banner
banner
banner