Enskir fjölmiðlar halda því fram í dag að Steven Gerrard fyrirliði Liverpool muni spila framar á vellinum gegn búlgarska liðinu Ludogorets Razgrad í Meistaradeildinni í kvöld.
Gerrard hefur leikið aftarlega á miðjunni á þessu tímabili en hann hefur fengið talsverða gagnrýni fyrir frammistöðu sína.
Enskir fjölmiðlar telja að Lucas Leiva muni koma inn í lið Liverpool í kvöld og Steven Gerrard og Jordan Henderson fái að leika framar á miðjunni.
Rickie Lambert mun væntanlega áfram leiða framlínuna í fjarveru Daniel Sturridge og Mario Balotelli.
Þá gæti Kolo Toure komið inn í liðið á kostnað Dejan Lovren sem hefur spilað illa síðan hann kom frá Southampton á 18 milljónir punda í sumar.
Liverpool þarf á góðum úrslitum að halda í kvöld til að eiga áfram möguleika á að komast í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar.
Athugasemdir