Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 26. nóvember 2015 12:30
Magnús Már Einarsson
Baines snýr aftur um helgina
Mynd: Getty Images
Leighton Baines mun snúa aftur í lið Everton um helgina eftir langa fjarveru.

Hinn þrítugi Baines meiddist á ökkla rétt fyrir byrjun ensku úrvalsdeildarinnar í ágúst.

Baines hefur ekkert komið við sögu síðan þá en hann verður í leikmannahópi Everton gegn Bournemouth um helgina.

„Mikilvægast er að hann fái sjálfstraustið aftur," sagði Roberto Martinez, stjóri Everton.

„Við þurfum að passa okkur. Við tökum þetta dag frá degi. Hann þarf að geta farið í 50/50 baráttu án þess að vera hræddur."
Athugasemdir
banner
banner