Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 26. nóvember 2015 12:00
Magnús Már Einarsson
Fellaini tekinn tvisvar fyrir hraðakstur á sex mínútum
Mynd: Getty Images
Marouane Fellaini, miðjumaður Manchester United, hefur verið sviptur ökuleyfi næstu níu mánuðina.

Fellaini var gripinn tvisvar við hraðakstur á einungis sex mínútna kafla í maí síðastliðnum.

Fellaini ók fyrst á 130 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði var 65 kílómetrar á klukkustund.

Sex mínútum síðar var hann á 95 kílómetra hraða þar sem var 48 kílómetra hámarkshraði.

Fellaini þarf í refsingarskyni að hvíla bifreiðina sína næstu mánuðina.
Athugasemdir
banner
banner