Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 26. nóvember 2015 10:37
Magnús Már Einarsson
Grealish ekki í hóp hjá Aston Villa um helgina
Mynd: Getty Images
Remi Garde, stjóri Aston Villa, hefur staðfest að Jack Grealish verði ekki í leikmannahópi Aston Villa gegn Watford um helgina vegna agabrots.

Hinn tvítugi Grealish ferðaðist ekki heim með liði Aston Villa eftir 4-0 sigurinn á Everton um síðustu helgi.

Þess í stað ákvað hann að fara til Manchester á djammið með félögum sínum.

Á sunnudeginum mætti hann heim til Birmingham en hélt þá annað partý á hóteli þar í borg áður en hann mætti á æfingu daginn eftir.

Garde er ósáttur með hegðun Grealish og hefur sent hann til æfinga með U21 árs liði Aston Villa en óljóst er hvenær hann kemur aftur inn í aðalliðið.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner