Stuðningsmenn Celtic eru brjálaðir vegna slæms árangurs í Evrópudeildinni þar sem liðið er aðeins með tvö stig eftir fimm leiki í riðlakeppninni.
Celtic fékk Ajax í heimsókn fyrr í kvöld og tapaði leiknum við mikla óánægju stuðningsmanna.
Celtic fékk Ajax í heimsókn fyrr í kvöld og tapaði leiknum við mikla óánægju stuðningsmanna.
Ronny Deila, knattspyrnustjóri Celtic, hefur fengið sinn skerf af gagnrýninni og eru stuðningsmannahópar sem vilja sjá hann fara þrátt fyrir gott gengi í skosku deildinni þar sem liðið er með sex stiga forystu.
„Við gerum sömu mistökin aftur og aftur og það er ekki nógu gott," sagði Deila eftir tapið.
„Ég sé samt mikla hæfileika sem eiga eftir að þroskast, við erum með mjög efnilegt lið og sköpuðum alskonar vandræði fyrir andstæðingana.
„Það gefur mér mikla orku til að koma tvíefldur til baka, ég hef gert það oft á ferlinum."
Athugasemdir