Roy Keane, fyrrum fyrirliði Manchester United, er vanur því að tala í fyrirsögnum.
Nú hefur Keane gagnrýnt núverandi fyrirliða United, sóknarmanninn Wayne Rooney.
Nú hefur Keane gagnrýnt núverandi fyrirliða United, sóknarmanninn Wayne Rooney.
Rooney átti alls ekki góðan leik þegar United gerði aðeins markalaust jafntefli á heimavelli gegn PSV Eindhoven í Meistaradeildinni. Hætta er á að enska stórliðið komist ekki upp úr riðli sínum.
„Hann virkar ekki einbeittur andlega, líkamlega þá virðist hann ekki í góðu formi. Hann verður að fara í naflaskoðun," sagði Keane á ITV.
„Það vantaði upp á útgeislun hans og gæði, hann verður að líta í eigin barm og stíga upp. Wayne er hátt skrifaður hjá Manchester United og ferilskrá hans glæsileg en hann er fyrirliði þarna og þarf að leggja meira á sig."
Athugasemdir