Thiago Silva, fyrirliði PSG, þykir mikið til liðsfélaga síns, Marco Verratti, koma og segir hann geta orðið einn besta leikmann heims.
Hinn 23 ára gamli Verratti hefur verið í lykilhlutverki hjá Parísarliðinu á tímabilinu og er að taka stórstígum framförum en hann er á sínu þriðja ári hjá franska stórveldinu.
„Marco er sterkur jafnt innan sem utan vallar. Hann hefur einstakan persónuleika."
„Hann tekur mikla ábyrgð á vellinum og gerir hluti sem margir miðjumenn myndu ekki þora að gera. Hann getur orðið einn besti leikmaður heims, eins og Andrea Pirlo," segir Thiago Silva.
Athugasemdir