Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 26. nóvember 2016 20:30
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Conte: Of snemmt að tala um titil
Conte ánægður með sigurinn
Conte ánægður með sigurinn
Mynd: Getty Images
Antonio Conte, þjálfari Chelsea var ánægður með sigurinn á Tottenham í kvöld en telur það of snemmt að tala um titil.

„Svona leikir eru alltaf erfiðir, það var mikil spenna í þessum leik og þetta var mjög erfiður leikur." sagði Conte sigurreifur.

Conte telur ekki tímabært að tala um titil þessa stundina, mikið væri eftir af tímabilinu.

„Þetta er erfið deild. Tottenham sýndi okkur það, að það eru 6-7 lið í deildinni sem geta unnið hana. Það er mikilvægt að halda áfram á þessari leið og bæta sjálfstraustið."

Conte og liðsmenn hans í Chelsea eru á toppi ensku úrvalsdeildarinnar.
Athugasemdir
banner