Heimild: Goal
Kevin Davies, fyrrum sóknarmaður Bolton, telur að Wayne Rooney myndi elska að enda feril sinn hjá Manchester United, en hann segir jafnframt að ýmsar kringumstæður gætu komið í veg fyrir að það gerist.
Davies þekkir enska boltann vel, en hann heldur að Rooney myndi helst vilja enda ferilinn hjá United. Rooney er á samningi hjá Man Utd til 2019, en það er margt sem getur breyst.
Davies þekkir enska boltann vel, en hann heldur að Rooney myndi helst vilja enda ferilinn hjá United. Rooney er á samningi hjá Man Utd til 2019, en það er margt sem getur breyst.
Rooney hefur átt í ákveðnum erfiðleikum á þessu tímabili og talað hefur verið um að þetta sé mögulega hans síðasta tímabil hjá rauðu djöflunum.
„Hann elskar augljóslega félagið, og það skiptir hann miklu máli. Ég held að hann myndi elska að enda ferilinn þarna, en það getur margt breyst," sagði Davies.
„Ég lenti í því sjálfur að hlutirnir breyttust og við sáum það með Steven Gerrard sem þurfti að yfirgefa Liverpool, svo við munum sjá hvað gerist. Það eina sem hann getur gert er að halda áfram að spila."
Athugasemdir