Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 26. nóvember 2016 19:35
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
England: Chelsea á toppinn
Victor Moses skoraði sigurmark Chelsea
Victor Moses skoraði sigurmark Chelsea
Mynd: Getty Images
Chelsea 2 - 1 Tottenham
0-1 Christian Eriksen ('11 )
1-1 Pedro ('45 )
2-1 Victor Moses ('51 )


Chelsea hélt sigurgöngu sinni áfram eftir sigur á nágrönnum sínum í Tottenham á Brúnni. Christian Eriksen kom gestunum yfir með marki á 11. mínútu og var þetta fyrsta markið í rúma tvo mánuði sem Chelsea fær á sig í deildinni.

Rétt fyrir hálfleik jafnaði Pedro leikinn fyrir heimamenn og snemma í seinni hálfleik kom Victor Moses Chelsea yfir og urðu það lokatölur leiksins.

Chelsea er nú komið aftur á toppinn og hafa eins stigs forystu á Liverpool og Manchester City.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner