Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 26. nóvember 2016 12:19
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Er Martial á síðasta séns hjá Mourinho?
Martial hefur ollið vonbrigðum á þessu tímabili
Martial hefur ollið vonbrigðum á þessu tímabili
Mynd: Getty Images
Anthony Martial, leikmaður Manchester United, er á síðasta séns hjá Jose Mourinho, stjóra félagsins, samkvæmt frétt The Times í dag.

Martial kom til Man Utd frá Monaco á lokadegi félagsskiptagluggans 2015 og hann var einn besti leikmaður liðsins á síðasta tímabili.

Hann hefur hins vegar verið í basli á þessari leiktíð og ekki tekist að heilla nýjan stjóra liðsins, Jose Mourinho.

Martial var ekki í leikmannahópi rauðu djöflana gegn Fayenoord í Evrópudeildinni á fimmtudaginn og þá vöknuðu upp spurningar.

Brasilíski kantmaðurinn Willian, sem er mála hjá Chelsea, hefur verið orðaður við United síðustu daga, en samkvæmt The Times fær Martial eitt tæki­færi í viðbót til að sanna sig.

Hér að neðan má sjá forsíðu The Times í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner