Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   lau 26. nóvember 2016 12:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: Goal 
Fertugur Totti: Af hverju að hætta?
Totti er hetja hjá Roma
Totti er hetja hjá Roma
Mynd: Getty Images
Roma-goðsögnin Francesco Totti segir að það sé ekki klappað og klárt að hann muni hætta eftir þetta tímabil.

Totti er enn á fullu með Roma, en hann er orðinn fertugur og á yfir 300 mörk á ferlinum. Hann hefur verið hluti af aðalliði Roma frá árinu 1992.

Samningur Totti við Roma klárast eftir þetta tímabil, en hann segist vera opinn fyrir því að framlengja samning sinn við félagið sem hann elskar.

„Það er ekkert augljóst í fótbolta," sagði Totti aðspurður út í málið. „Allir héldu að ég væri búinn á síðasta ári, eitthvað sem gerist mikið í þessu starfi, sérstaklega þegar hlutirnir ganga ekki vel. Öllum er samt frjálst að segja það sem þeir vilja."

„Ég hef trú á bæði hausnum mínum og líkama, ég get enn gefið mikið og mér líður vel, af hverju þá að hætta?"
Athugasemdir
banner
banner