Heimild: Daily Mail
Nokkuð hefur verið talað um það þegar Jordan Henderson fór ásamt Adam Lallana á strípiklúbb á meðan þeir félagar voru í landsliðsverkefni.
Þessi heimsókn þeirra á strípiklúbbinn féll þó dálítið í skuggann af fylleríi Wayne Rooney á liðshótelinu það sama kvöld.
Þessi heimsókn þeirra á strípiklúbbinn féll þó dálítið í skuggann af fylleríi Wayne Rooney á liðshótelinu það sama kvöld.
Kevin Ball, unglingaþjálfari hjá Sunderland, þjálfaði einu sinni Henderson, en hann segir að leikmaðurinn hafi á sínum unglingsárum verið mikill rólyndismaður.
„Þetta var í kringum jólin og ég spurði leikmennina að því hverjir væru að fara út á lífið. Ég spurði Jordan hvort að hann væri að fara og hann sagði: 'Nei - Ég ætla að horfa á X Factor í kvöld.' Það var það eða einhver annar raunveruleikaþáttur," sagði Ball.
„Það sem ég er að reyna að segja með þessu er að ég dáðist að honum fyrir að segja nei. Ég man að hafa hugsað um það hversu mikið hugrekki hann hafði að segja nei fyrir framan jafningja sína. Þetta sýndi mér að Jordan gat staðið á sínum eigin fótum."
Athugasemdir